Þjónusta
FORVINNSLA
Vantar þig uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum eða bókum?
Í forvinnslunni er tekið á móti alls kyns verkefnum til uppsetningar. Einnig er tekið á móti tilbúnum gögnum og þau undirbúin fyrir prentun.
PRENTUN
Prentun er okkar fag.
Hjá okkur starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.
FRÁGANGUR
Litlaprent býður upp á fjölbreytt úrval á frágangi prentverks.
Frágangur er t.d. brot, vírhefting, fræsing, gormun, kjallíming, gylling, laminering, stönsun, upphleyping og margt fleira