Límmiðar
Prent býður uppá stafrænt prentaða límmiða sem hentar vel í minni upplög. Viðskiptavinir geta ráðið stærð og lögun að vild, þarftu t.d. miða á bjórflöskur fyrir afmælið, fyrirtækjapartý minnsta mál að bjarga því. Með stafrænni prentun getur þú valið stærð og lögun eftir þínu höfði í því magni sem hentar.
Límmiðar í öllum stærðum og gerði, á rúllu eða á örkum.
Við prentum límmiða á rúllum sem notaðir eru á umbúðir fyrir matvæli, bjór, lyf, hreinlætisvörur og margt annað. Hægt er að prenta á pappír, álefni, plast, gull og silfur.
Auk þess eigum við alltaf mikið úrval óáprentaðra (blanco) límmiða á lager. Við veitum ráðgjöf um hagstæðustu lausnirnar og erum þekkt fyrir skjóta og góða þjónustu.
Límmiðanir geta verið í hvaða lögum sem er. Vélarnar okkar sjá um að skera límmiðana í því formi sem viðskiptavinurinn óskar eftir.