Hvers vegna Prent?
FORVINNSLA
Við aðstoðum við uppsetningu á prentverki - td. nafnspjöldum, bæklingum, reikningum og sjáum um umbrot á blöðum og bókum
PRENTUN
Hjá okkur starfa faglærðir prentarar með mikla þekkingu. Öflugur vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu prentverki.
FRÁGANGUR
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af frágangi prentverks s.s. brot, vírhefting, fræsing, gormun o.fl.
1967
SAGA PRENTS
Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð. Það er því óhætt að segja að prentsmiðjan hafi þá staðið fyllilega undir nafni.
Árið 1973 kom Georg Guðjónsson inn í reksturinn og jukust umsvifin jafnt og þétt sem kallaði fljótt á nýtt húsnæði. Árið 1974 fluttist prentsmiðjan að Auðbrekku 48 og keypt var m.a. ein af fyrstu offsetprentvélum á Íslandi.
Samstarfsaðilar